Augnheilsan þín í öruggum höndum

Augnlæknastofan í Mjódd hefur verið starfrækt síðan 1993. Hjá okkur starfar samhentur hópur reyndra augnlækna ásamt sjónfræðingi sem tekur vel á móti jafnt börnum sem fullorðnum.

Fljótlegast er að bóka tíma á netinu. Einnig er hægt að hringja á símatíma í síma 587 2344.

Áætlaður biðtími fyrir fyrstu komu
Hægt er að vera á biðlista ef tími losnar fyrr.
Sjónfræðingur
Allir
4mánaða bið
Augnlæknir
Börn
7mánaða bið
Fullorðnir
13mánaða bið
Starfsfólk

Fólkið sem tekur á móti þér.

Helgi Davíð Björnsson

Augnlæknir
Nánar ↓Loka ↑
Menntun

Læknanám við University of Debrecen. Sérnám í augnlækningum í Noregi — Oslo Universitetssykehus og Vestre Viken 2012–2018. Evrópskt sérfræðipróf í augnlækningum (FEBO), París 2019.

Reynsla

Fyrrverandi yfirlæknir barnaaugnlækninga við Oslo Universitetssykehus. Augnlæknir hjá Sjónlagi 2019–2026. Augnlæknir á Augndeild Landspítala með áherslu á augnsjúkdóma barna og fyrirbura síðan 2019. Sérfræðingur hjá Augnlæknastofunni í Mjódd frá 2026.

Þorkell Sigurðsson

Augnlæknir
Nánar ↓Loka ↑
Menntun

Læknapróf frá Háskóla Íslands 1984. Sérfræðinám í augnlækningum við Haukeland háskólasjúkrahúsið í Björgvin í Noregi 1989–1993.

Reynsla

Sjálfstætt starfandi sérfræðingur á Augnlæknastofunni í Mjódd frá 1993. Sinnti stóru elli- og dvalarheimilunum í Reykjavík á árunum 1996–2019. Fór í reglubundnar augnlæknaferðir á Ísafjörð á árunum 1994–2004.

Örn Sveinsson

Augnlæknir
Nánar ↓Loka ↑
Menntun

Almennt læknanám við Háskóla Íslands. Sérfræðinám í augnlækningum við Haukeland háskólasjúkrahúsið í Björgvin í Noregi 1987–1992.

Reynsla

Hefur starfað á Augnlæknastofunni í Mjódd frá stofnun hennar 1993. Starfaði sem sérfræðingur á göngudeild augndeildar á Landakoti og á Augnlæknastofunni í Domus Medica og Keflavík fyrir aldamótin 2000, og sinnti augnlæknaþjónustu á landsbyggðinni — Hólmavík, Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd og Austfjörðum — þar til 2022.

Zuzana Rutenberg

Sjónfræðingur
Nánar ↓Loka ↑
Menntun

M.Optom-gráða í sjónfræði frá Hadassah Academic College í Jerúsalem, með sérhæfingu í samsjón (binocular vision), sjónþjálfun og sértækri linsumátun — m.a. myopia control, ortho-k, hybrid- og sclerallinsur. Sækir árlega alþjóðlegar ráðstefnur til símenntunar.

Reynsla

Hefur starfað sem sjónfræðingur og sjónþjálfi í Ísrael og við Augnlæknastofuna í Mjódd frá 2006. Sérhæfir sig í sjónþjálfun, þar sem unnið er að eðlilegri samvinnu augna og heila. Meðlimur í NORA, BOAF, EAOO og Félagi íslenskra sjóntækjafræðinga.

Ástrós Lind Guðbjörnsdóttir

Ritari

Sandra Guðjónsdóttir

Ritari

Sigríður Jóna Jóhannsdóttir

Ritari
Þjónusta

Það sem við sinnum.

Augnskoðanir

Heildarskoðun augnlæknis á sjón og augnheilsu fyrir fullorðna og börn.

Barnaaugnlækningar

Augnskoðun og meðferð hjá augnlækni, sniðin að þörfum barna. Nánar um barnaaugnlækningar →

Sjónþjálfun

Sérsniðnar æfingar sem styrkja samvinnu augna og heila — við lestrarörðugleika, augnþreytu og latt auga. Sjá nánar á sjonthjalfun.is.

Gláka

Greining, þrýstingsmæling og reglubundið eftirlit með gláku.

Ský á auga

Mat á skýi á auga og ráðgjöf um næstu skref og tilvísanir.

Augnbotnahrörnun

Greining og reglubundið eftirlit. Ráðgjöf varðandi meðferðarmöguleika.

Sykursýkiseftirlit

Reglubundin augnskoðun fyrir sykursjúka til að fylgjast með áhrifum á augnbotna.

Augnþurrkur

Greining og meðferð við augnþurrki og óþægindum í augum.

Sjónlagsgallar

Mat á nærsýni, fjarsýni og sjónskekkju ásamt ráðgjöf um leiðréttingu.

Verðskrá

Greiðsluþátttaka og verð.

Læknisverk

Verðskrá stofunnar fyrir læknisverk fylgir samningi Læknafélags Reykjavíkur við Sjúkratryggingar Íslands. Þú getur lesið nánar um greiðsluþátttöku sjúklinga á sjukra.is.

Eftirfarandi rannsóknir falla utan samningsins og eru því ekki niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands:

Öxullengdarmæling
4.900 kr
Sneiðmynd af hornhimnu
8.900 kr
Verk sjónfræðings

Verð fyrir hvern tíma (35–40 mínútur) er 19.000 kr fyrir börn undir 12 ára aldri og 21.000 kr fyrir 12 ára og eldri.

Linsumátun
25.000 kr
Linsumátun sjónskekkja eða fjölfókus
35.000 kr
Linsutékk
15.000 kr
Linsuvökvi
2.800 kr

Kostnaður við lán á hjálpartækjum er 35.000 kr sem eru greiddar fyrirfram. Endurgreitt er 20.000 kr í lok þjálfunar þegar hjálpartækjum er skilað og ef tækin eru óskemmd. Endurgreiðsla lækkar ef hjálpartæki verður fyrir skemmdum.

Hjálpartækjum verður að skila í síðasta lagi 2 vikum eftir að sjónþjálfun hættir eða er stöðvuð, annars verður leiguverðið innheimt að fullu.

Panta tíma

Bókaðu tíma á netinu.

Netbókun er fljótlegasta leiðin og er opin öllum aldurshópum. Einnig er hægt að hringja á símatíma.

02

Hringdu í okkur

Viltu frekar tala við okkur? Hringdu á símatíma og við finnum tíma sem hentar.

Sími 587 2344
Staðsetning & opnunartímar

Þú finnur okkur í Mjóddinni.

Heimilisfang
Álfabakki 14, 109 ReykjavíkNæg bílastæði við Mjóddina
Beint fyrir ofan Augastað.
Tölvupóstur
Netfang
Opnunartímar
Mánudaga–fimmtudaga
08:00–16:00
Föstudaga
08:00–13:00
Helgar
Lokað
Símatími
Mánudaga–fimmtudaga
08:30–12:00
13:00–15:00
Föstudaga
08:30–12:00